Parki X Sahara
Notkun Gervigreindar við framleiðslu
Sahara og Parki fóru í framleiðslu á nýrri auglýsingu fyrir Parka. Þar átti að koma á framfæri það breiða vöru úrval sem Parki býður upp á. Hugmyndin af auglýsingunni var hugsuð sem skemmtileg ný nálgun á gömlum útvarpsauglýsingum Parka sem flestir landsmenn ættu að þekkja og tengja hana saman við nýja efnið.
Fyrir tökur var farið í að finna falleg rými þar sem notast er við parket úr Parka og til að tengja auglýsingarnar saman er bent á það, horft í myndavélina og einfaldlega sagt “parket” líkt og í gömlu útvarpsauglýsingunni. Þó að rýmin sem voru mynduð væru einstaklega glæsileg nýtti framleiðsludeild Sahara sér þó krafta gervigreindar við eftirvinnslu auglýsingarinnar til að sérsníða þau eftir þörfum.
Með því að nota gervigreindar möguleika Adobe photoshop var hægt að breyta rýmunum eftir sérvisku leikstjórans, breyta útsýni til hins betra og jafnvel að fjölfalda veggfóður svo það hylji heilan vegg!
Sahara hefur alltaf einsett sér það að vera á tánum þegar að kemur að nýrri tækni til að hjálpa okkur við að gera útkomuna eins góða og mögulegt er. Gervigreind er þar engin undantekning