MÆNUSKAÐASTOFNUN ÍSLANDS

Hugmyndavinna

HANDRIT

Framleiðsla

Hönnun

Umsjón með herferð

Mænuskaðastofnun Íslands

Mænuskaðastofnun Íslands vildi fá okkur til að skapa fyrir sig tilfinningaríkt og magnþrungið ákall þar sem skorað er á stjórnvöld að opna gagnabanka og aðgang að upplýsingum svo hægt sé að leiða saman vísindafólk og lækna þvert á landamæri til þess að finna lækningu við mænuskaða. Við fórum þá leið að nota ljósstrengi sem tákn fyrir tæknina og flækjuna sem verkefnið og mænan er. Einnig er tenging með ljósstrengjunum í strengjabrúðu sem hefur verið mikið notuð í kynningarefni Mænuskaðastofnun Íslands og er þekkt.


Vísindafólkið og læknateymið ná svo að leysa úr flækjunni og hjálpa stúlkunni að rísa úr hjólastólnum og um leið og hún stendur upp þá breytast ljósin þar sem lækning er fundin. Að lokum stígur stúlkan sín fyrstu skref óstudd og gengur af stað, frjáls út í lífið sem framundan er.