Bestseller

Fermingar

Hugmyndavinna

Framleiðsla

Hönnun

Umsjón með herferð

Vefsíðugerð

Bestseller

Fermingar

Á hverju ári ganga hundruðir einstaklinga í fullorðinna manna tölu og með það að markmiði að kynna fermingarfatnað í verslun sinni Jack & Jones, leitaði Bestseller til Sahara. 


Sahara og Jack & Jones fóru í ljósmyndatöku ásamt video framleiðslu á nýju efni þar sem fermingarfatnaður var í aðallhlutverki. Til þess að kynna vörurnar voru nokkrir frambærilegir drengir fengnir í verkefnið og var það Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B, sem leiddi hópinn. 


Ákveðið var að útbúa sérstaka lendingarsíðu fyrir verkefnið þar sem vöruúrval var kynnt. Þetta var gert til þess að áhugasöm ættu ekki í neinum vandræðum með að finna það sem leitað var eftir. Í boði voru þrír pakkar sem hægt var að velja á milli, hver öðrum glæsilegri.